123-456-7890

EB5

"If You Fail To Prepare You Are Preparing To Fail"

Ný síða komin í loftið

Þar kom að því, ég kom mér loksins í það að setja upp nýja síðu bæði til að setja upplýsingar um mig og mína þjónustu á sviði Microsoft Business Applications á framfæri og ekki síður til að halda áfram að skrifa blog og deila minni þekkingu og reynslu.

Einnig hef ég sett hér inn á síðuna yfirlit yfir námskeið sem að ég ætla að vera með á næstunni, endilega kíkið á það hér, þar er pottþétt eitthvað fyrir þig og vinnufélagana. Í þessu samhengi vil ég líka benda á að ég hef gert töluvert af því að sérsmíða námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir og þá er kennsluefnið sniðið að einhverju vandamáli eða áskorun sem á að leysa. Þetta er í ætt við hackathon eins og þau þekkjast í þessum bransa, en ég setti upp og stýrði nokkrum slíkum á vegum PowerObjects þegar að ég bjó og starfaði á Englandi.

Þjónustan sem að ég býð upp

Það er svo gott sem allur Microsoft Business Applications stakkur eins og hann leggur sig en eg hef unnið með ERP lausnir, Dynamics 365 CRM lausnir og Power Platform lausnir síðan í byrjun 2004 eða um 21 ár þegar að þetta er skrifað í mars 2025.

Ef þú vilt fræðast meira um ERP lausnir, Dynamics 365 CRM lausnir Power Platform lausnir þá endilega sendu mér póst eða hafði samband við mig á LinkedIn

Contact info

contact@example.com

123-456-7890

123 Startup Lane, Floor 3 Unit C, Profit, MA

Discover more from EB5

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading