
Fyrirtækið var stofnað sumarið 2023 til að halda utan um verkefni sem að Einar Hagalín Láruson tekur að sér sem sjálfstætt starfandi sérfræðingur á sviði Microsoft viðskiptalausna.
Í gegnum árin hef ég unnið með fjölbreyttum viðskiptavinum, allt frá smáfyrirtækjum til stórfyrirtækja, og hjálpað þeim að ná markmiðum sínum með sérsniðnum lausnum. Verkefni mín hafa falið í sér innleiðingu á Dynamics 365 Finance and Operations, Power Platform, Power BI, og Power Apps, Power Automate sem hafa umbreytt rekstri þeirra.
Ég hef búið og starfað í Svíþjóð, Noregi og á Englandi og þar af leiðandi unnið að mjög fjölbreyttum verkefnum í ólíkum menningarheimum.
Um merki fyrirtækisins – EB5
Þar sem að Einar hefur mikið dálæti á þungarokki var farin sú leið að búa til merki í þeim anda til að ná yfir þann kraft og orku sem er að býr í þungarokkinu. Þessa orku og kraft tekur Einar með sér í öll verkefni á vegum EB5. Einnig er það frábær leið eftir langan dag á skrifstofunni að skella sér í hreinan þungarokksbol, svartar buxur, jafnvel bæta við eitt stykki gallavesti og fá útrás á þungarokkstónleikum. Það er mikið þerapía sem felst í því að dansa, slamma, sveifla hárinu og öskra úr sér lungun og mælir Einar með því að fólk geri það mjög reglulega.