Í gegnum allan minn feril þá hef ég gert mikið af því að halda námskeið og undanfarin ár hef ég haldið mörg námskeið sem tengjast Power Platform og Dynamics 365. Ég hef verið vottaður Microsoft kennari, það sem kallast Microsoft Certified Trainer, MCT. Sem slíkur hef ég aðgang að nýjasta kennsluefninu frá Microsoft á hverjum tíma og námsekiðin sem að ég býð upp á eru öll kennd með viðurkenndum og stöðluðum kennslugögnum frá Microsoft.
Sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki
Stærri fyrirtæki fá mikinn ávinning af því að halda námskeið fyrir starfsfólkið sitt í eigin húsnæði. Þá kem ég til ykkar og held eitt eða fleiri námskeið fyrir hóp fólks. Þetta er hagnýt leið til þess að byggja upp færni starfsfólksins þar sem að á þessum námskeiðum legg ég mikið upp úr því að fólk vinni saman og aðstoði hvert annað. Þetta hefur sýnst sig að heldur svo áfram að námskeiði loknu og fólk heldur áfram að vinna saman og byggja ofan á það sem þau lærðu á námskeiðinu. Þessi leið er líka mjög fjárhagslega hagkvæm þar sen að í langflestum tilfellum er greitt fast gjald fyrir daginn. Samið er um námskeiðsgjaldið áður en að námskeiðið er haldið og veittur er afsláttur ef keyptir eru tveir eða fleiri námskeiðsdagar
Hafir þú áhuga á að fá námskeið inn í þitt fyrirtæki hafðu þá endilega samband með tölvupósti eða með því að fylla út þetta form hér
Ég hef tekið að mér að hald asérsniðin námskeið þar sem kafað er dýpra í einhver tiltekin málefni og má þar nefna hluti eins og
- Læra að setja upp gagnagrunnsmódel í Dataverse
- Formúlur og aðgerðir í Power Apps
- Nota skriftur og flóknari aðgerðir í Power Automate
- Stjórnun umhverfa í Power Platform Admin Center
- Sjálfvirknivæðing útgáfuferla með Azure DevOps
- Og sitthvað fleira
Námskeið sem eru framundan
Eftirfarandi námskeið eru komin á dagskrá og verða haldin 28.maí, 04 og 11. júní 2025 og verða öll námskeiðin haldin í húsnæði björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ að Völuteigi 23, 270 Mosfellsbæ. Verð per námskeið er 60.000 og er eftirfarandi innifalið:
- Öll námsgögn og æfingar
- 8 klukkutímar af blöndu af fyrirlestrum og æfingum undir leiðsögn kennara
- Morgunhressing áður en námskeið hefst
- Kaffi, te, vatn og meðlæti á meðan á námskeiðinu stendur
- Hádegismatur
- Síðdegishressing
- Aðgangur að kennara að námskeiði loknu
- Að loknu námskeiði er í boði að hafa Einar innan handar ef nemendur þurfa aðstoð við Power Platform útfærslur – Þetta býðst ekki eftir öll námskeið en ég vil veita persónulega og góða þjónustu
Skráðu þig á tvö eða fleiri námskeið og fáðu betra verð
- Tvö námskeið 110.000 kr (55.000 kr per námskeið)
- Öll þrjú 150.000 kr (50.000 kr per námskeið)
| Heiti | Dagsetning | Lengd | Verð |
|---|---|---|---|
| PL-900: Microsoft Power Platform Grunnur ( Fundamentals ) | 1 dagur | 60.000 kr | |
| PL-7001 – Create and manage canvas apps with Power Apps | 1 dagur | 60.000 kr | |
| PL-7002 – Create and manage automated processes by using Power Automate | 1 dagur | 60.000 kr |
Önnur námskeið á dagskrá síðar
| Heiti | Dagsetning | Lengd |
|---|---|---|
| PL-200 Microsoft Power Platform ráðgjafi ( Functional Consultant ) | Óákveðið eins og er | 5 dagar |
| PL-7003 – Create and manage model-driven apps with Power Apps and Dataverse | Óákveðið eins og er | 1 dagur |
| PL-7004: Implement AI models with Microsoft Power Platform AI Builder | Óákveðið eins og er | 1 dagur |
Um kennarann
LinkedIn prófill fyrir Einar Hagalín Láruson

Einar hefur unnið við upplýsingatækni síðan 1997 og byrjaði ferilinn í vefhönnun og margmiðlun og vann sem kennari við Rafiðnaðarskólann og síðar Margmiðlunarskólann. Einar tók þátt í mótun námsins í Margmiðlunarskólanum og kenndi þar allt þangað til skólinn var sameinaður Iðnskólanum.
Einar er útskrifaður tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur síðan 2004 unnið við Microsoft Business Applications með áherslu á Microsoft Dynamics Ax og síðar Microsoft Dynamics 365. Einar hefur unnið með Power Platform lausnir frá því að þær komu fyrst fram á markaðinn í kringum 2017 og hefur verið í fararbroddi í kennslu og innleiðingu á Power Platform lausnum á Íslandi. Einar vinnur í dag sem sjálfstæður sérfræðingur við Microsoft Dynamics 365 og Power Platform í gegnum eigin rekstur EB5 ehf. Einar er jafnframt vottaður Microsoft kennari, Microsoft Certified Trainer – MCT. Einar er einnig þekktur og viðurkenndur fyrirlesari og stofnandi að Power Platform User Group Iceland og hefur staðið fyrir fyrirlestrum með aðkomu erlendra sérfræðinga.