123-456-7890

PL-900: Microsoft Power Platform Grunnur

Lýsing

Nemendur fá að kynnast og upplifa notagildi og þá möguleika sem Power Platform hefur upp á að bjóða. Lærðu að nota Power Platform lausnir og hvernig þær nýtast í fyrirtækjarekstri, fyrir opinberar stofnanir, góðgerðarsamtök og fleiri aðila.

Lærðu að búa til einföld öpp, nota gögn úr Microsoft Dataverse gagnagrunnskerfinu, sjálfvirknivæða ferla sem og að búa til Power BI skýrslur og stjórnborð.

Fyrir hverja?

Microsoft Power Platform Grunnur (Fundamentals) er hannað og ætlað fyrir alla þá sem hafa áhuga á að nýta sér Power Platform lausnir til þess að auka framleiðni með sjálfvirkum ferlum, greina gögn og búa til öpp.

Nemendur þurfa ekki að hafa reynslu af Microsoft Power Platform til þess að sitja þetta námskeið. Gert er ráð fyrir því að nemendur hafi grunn þekkingu á því að vinna í tölvu, geti greint gögn/upplýsingar, þekki til skýjalausna sem og annarra netkerfa.

Að loknu námskeiði

Eftir að hafa lokið þessu námskeiði þá geta nemendur:

  • Unnið með mismunandi Power Platform kerfi þ.e. Power Apps, Power Automate, Power BI og Power Virtual Agent.
  • Hafa grunnþekkingu á Microsoft Dataverse, misunandi gagnatengingum og AI Builder.
  • Öðlast innsýn hvernig unnið er með Microsoft 365, Dynamics 365 og Azure og aðrar lausnir
  • Geta lýst eiginleikum og notagildi Power Platform lausna
  • Þekkja það „business value“ sem felst í notkun á Power Platform lausnum
  • Geta útfært einfaldar lausnir og notað saman Power Apps, Power Automate og Power BI

Um kennarann

LinkedIn prófill fyrir Einar Hagalín Láruson

Einar hefur unnið við upplýsingatækni síðan 1997 og byrjaði ferilinn í vefhönnun og margmiðlun og vann sem kennari við Rafiðnaðarskólann og síðar Margmiðlunarskólann. Einar tók þátt í mótun námsins í Margmiðlunarskólanum og kenndi þar allt þangað til skólinn var sameinaður Iðnskólanum.

Einar er útskrifaður tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur síðan 2004 unnið við Microsoft Business Applications með áherslu á Microsoft Dynamics Ax og síðar Microsoft Dynamics 365. Einar hefur unnið með Power Platform lausnir frá því að þær komu fyrst fram á markaðinn í kringum 2017 og hefur verið í fararbroddi í kennslu og innleiðingu á Power Platform lausnum á Íslandi. Einar vinnur í dag sem sjálfstæður sérfræðingur við Microsoft Dynamics 365 og Power Platform í gegnum eigin rekstur EB5 ehf. Einar er jafnframt vottaður Microsoft kennari, Microsoft Certified Trainer – MCT. Einar er einnig þekktur og viðurkenndur fyrirlesari og stofnandi að Power Platform User Group Iceland og hefur staðið fyrir fyrirlestrum með aðkomu erlendra sérfræðinga.

Contact info

contact@example.com

123-456-7890

123 Startup Lane, Floor 3 Unit C, Profit, MA